Dluxbón veitir viðskiptavinum sínum upplýsingar og leiðbeiningar um vinnu verks með hagsmuni neytanda að leiðarljósi. Hér fyrir neðan eru nokkrar greinar sem ætti að upplýsa viðskiptavini um þær áhættur sem gætu fylgt því að láta þjónusta bifreið. Þegar viðskiptavinur samþykkir þjónustu Dluxbón er hann að samþykkja þessa skilmála. Lög nr. 42/2000 um þjónustukaup eiga við alla þjónustu sem Dluxbón veitir gegn endurgjaldi.
Óviðráðanleg atvik
Dluxbón ber áhættu af tjóni, eða rýrnun, sem verður áður en starfsmenn þess skila af sér verki nema þeir sýni fram á að tjónið sé vegna atvika sem ekki eru á þeirra valdi, sbr. 19. gr. laga nr. 42/2000 um þjónustukaup.
Akstur
Dluxbón býður viðskiptavinum upp á að sækja og skutla bílnum til þeirra án þess að rukka aukalega fyrir þá þjónustu og liggur ábyrgð vegna tjóns bifreiðar ekki á Dluxbón. Athuga skal vel að bifreið þarf að standast kröfur skoðunarstöðva (Aðalskoðun eða Frumherji t.d)
Vanræksla
Verði tjón á eignum viðskiptavina Dluxbóns þegar verk er unnið eða í tengslum við það eða hlutur sem afhentur hefur verið Dluxbón glatast eða skemmist ber Dluxbón að bæta það tjón nema starfsmenn þess sanni að þeir hafi ekki sýnt af sér vanrækslu, sbr. 25. gr. laga nr. 42/2000 um þjónustukaup.
Geymsla eigna, tjón og þjófnaður
Þegar verki lýkur býður Dluxbón viðskiptavinum sínum fram geymslusvæði fyrir eignir viðskiptavina. Um er að ræða bílaplan og/eða annað geymslusvæði. Dluxbón ber ekki ábyrgð á hverskyns þjófnaði eigna viðskiptavina Dluxbón af geymslusvæði eða af grasfletinum þegar eignir viðskiptavina eru geymdar þar að verki loknu. Hér á einnig við þjófnað á íhlutum eða öðrum eignum innan bifreiða. Dluxbón tekur ekki ábyrgð á bruna eigna viðskiptavina Dluxbón né tjóns af einhverju tagi við geymslu eigna viðskiptavina að verki loknu. Ef að starfsmenn Dluxbón setja lykla bifreiðar og aðra fylgihluti lyklakippu ofan á dekk eða inn í felgu eða í MasterLock lyklalás þá ber Dluxbón ekki ábyrgð á þjófnaði, frost – eða vatnstjóni á lyklunum.
Lakk almennt
Þegar viðskiptavinur afhendir bifreið geta verið margskonar skemmdir/gallar eða rýrnun í lakki svo ekki er hægt að ábyrgjast ef núverandi lakk höndli vatnsþrýsting háþrýstidælu (þar á meðal grunnur, litur eða glæra bifreiða flettist upp). Oft finnast líka óvelkomnar rispur á lakki og eru þær oftast vegna gáleysis notanda/farþega áður fyrr. Ef dýpri rispur finnast á lakki og viðskiptavinur telur það vegna vanrækslu Dluxbóns við þjónustu verður hann að sannreyna það því m.v góðan búnað og mikla varkærni Dluxbóns við verk sín er líklegast að rispan hafi verið á bifreið fyrir þjónustuna sjálfa. Þó svo að Dluxbón noti mögulega allra öruggustu þvottaaðferðir er ekki hægt að ábyrgjast 100% þvottarispulaus þrif.
Djúphreinsun og leðurhreinsun
Eðlilega má búast má við að Dluxbón getur ekki ábyrgst að tauefni sætis – og teppis slitni við meðferð hreinsunar. Sama á við önnur einangrunarefni, svo sem staðsett eru í skotti bifreiðar. Dluxbón getur ekki ábyrgst myglumyndun í tauefnum og/eða í svampi ef búið er að tilkynna viðskiptavini um hvernig skal meðhöndla áframhaldandi þurrkunarferli þess. Hér er átt við framkvæmd þurrkunar sem tekur við að djúphreinsun lokinni. Dluxbón tekur ekki ábyrgð á tjóni á rafbúnaði eða öðru rafbúnaðartengdum búnaði við djúphreinsun. Hér má nefna ef vökvi kemst í snertingu við rafbúnað, víra, takka eða annan rafbúnað bifreiðarinnar. Varðandi leðurhreinsun þá er ekki hægt ábyrgjast slit á leðri, upplitun, að áferð verði mött eða saumar leðurs losna upp við þrif þess. Hér á einnig við önnur leðurlíki.
Aftursýnisspeglar
Dluxbón tekur ekki ábyrgð á skemmd aftursýnisspegla í framrúðu sem eru eldri en 4 ára ef plastfesting brotnar. Plast verður brothættara með tímanum og verður því speglafestingin (ef úr plasti) viðkvæmari fyrir hreyfingum eða því hnjaski sem hún gæti orðið fyrir. Plastfesting gæti því brotnað við minnsta álag.
Festingar og límingar á ytra byrði bíls
Dluxbón tekur ekki ábyrgð á að festingar, lím, límmiðar eða önnur festiefni tengt bifreið gefi sig við notkun háþrýstidælu, háþrýstilofts eða vegna efnanotkunar. Hér á til dæmis við um auglýsingarmiða á lakki/rúðum bifreiða, skoðunarmiðar á bílplötum bifreiða og einnig límfestingar sem festa aukahluti (svo sem vindskeið (spoiler), svuntur (lip) og aðra aukahluti.
Greiðslur og verðskrá
Verðskrá Dluxbóns tilgreinir sanngjant verð miðað við vinnu og eðli hennar. Dluxbón lætur viðskiptavini í té verðáætlun vegna vinnu sinnar, ýmist samkvæmt almennri verðskrá Dluxbóns eða sérkjörum fyrir þá viðskiptavini sem kaupa þjónustu Dluxbóns reglulega. Verð má ekki fara verulega fram úr þeirri áætlun, sbr. 29. gr. laga nr. 42/2000 um þjónustukaup. Dluxbón áskilur sér lítillega verðhækkun ef verk er meira virði en áætlað var. Í verðáætlun eru innifalin öll opinber gjöld.
Ef að Dluxbón tekur að sér undirbúningsvinnu að beiðni viðskiptavinar í þeim tilgangi að skilgreina hve vinna væri mikil eða verð þjónustu sem vinna skal af hendi er Dluxbón heimilt að krefjast sérgreiðslu fyrir hana, sbr. 33. gr. laga nr. 42/2000 um þjónustukaup. Öll þjónusta skal vera greidd við afhendingu á bifreið. Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.
Viðbótarkostnaður verks
Dluxbón áskilur sér rétt til hækkunar á umsömdu verði ef verk ef meira virði en búast mátti við, sbr, 30. gr. laga nr. 42/2000 um þjónustukaup. Ef verk Dluxbóns er mun umfangsmeira en áætlað var og kostnaður verulega meiri en umsamið var, þá ber Dluxbón að tilkynna viðskiptavini það með sannarlegum hætti og óska eftir fyrirmælum um áframhaldandi verk, sbr. 31. gr. laga nr. 42/2000 um þjónustukaup. Ef viðskiptavinur svarar ekki tilkynningu Dluxbóns um hækkun kostnaðar er Dluxbóni heimilt að hætta vinnu við verk viðskiptavinar Dluxbóns. Ef Dluxbón ákveður að hætta verki á hann kröfu á viðskiptavin sem nemur hlutfalli unninnar vinnu.
Almennt um sölu á vörum
Dluxbón áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.
Ágreiningur
Greini aðila að þjónustusamningi þessum á um réttindi sín og skyldur samkvæmt lögum nr. 42/2000 um þjónustukaup geta þeir, einn eða fleiri, snúið sér til kærunefndar lausafjár- og þjónustukaupa og óskað eftir álitsgerð nefndarinnar um ágreiningsefnið. Niðurstöðum kærunefndar verður ekki skotið til annarra stjórnvalda en aðilar geta lagt ágreining sinn fyrir dómstóla með venjulegum hætti.
