Mössun

Ef lakkið er orðið veðrað, upplitað og litlar rispur komnar í lakkið, þá er hægt að ná þeim í burtu með mössun og gefa lakkinu nýtt líf. Umleið eykt gljástigið í lakkinu og bílinn verður eins og nýr!

Hefbundin mössun 
Vönduð mössun á lakki þar sem gamalt lakk fær nýtt líf og bílnum  gefið yngra útlit á ný. Við leytumst eftir 60% – 70% niðurstöðum í þessari mössun fyrir eldri bíla en ef lakkið er nýlegt og vel með farið næst jafnvel 80-90% niðurstöður. Við fjarlægjum flestar þvottarispur í burtu og hækkum gljástigið á lakkinu verulega. Í flestum tilfellum tekur þessi meðferð 2 til 3 daga.

Full mössun (full lakkleiðrétting)
Þessi pakki er fyrir þá  kröfuhörðu! Lakkið verður með meiri gljáa en við hefbundna mössun. Allt lakkið verður nánast eins og nýtt þar sem við köfum djúpt ofan í lakkið með því markmið að ná allt að 95% niðurstöðum. Við fjarlægjum flestar allar þvottarispur og gamla kvilla í burtu.  Í flestum tilfellum tekur þessi meðferð 3 til 4 daga.

Öll verkefni eru verðmetin svo best er að fá þig í kaffi til okkar á meðan við metum stöðuna á lakkinu. Við þykktarmælum lakkið til að átta okkur á því hversu djúpt við getum massað og séð hversu umfangs mikið verkefnið er. Við mælum með að bæta við keramikhúð á bílinn eftir þessa meðferð til þess að auðvelda viðhald og auka vörn á lakkið. Endilega vertu í sambandi við okkur. 

Heyrðu í okkur í síma 551 0212 eða sendu okkur fyrirspurn 

Fara upp