Tilboðspakki !
Keramíkhúðun eða Ceramic Coat er það nýjasta í viðhaldi bílalakks í dag. Keramík húðin veitir óviðjafnanlega vörn gegn óhreinindum og er virkilega endingargóð. Keramík húðin sem við notum er Cquartz UK 3.0 og er harðasta keramík húð sem fæst á markaðnum í dag, efnið er unnið úr kísildíoxíð (SIO2)(70% af innihaldi Cquartz), þetta er fyrsta varan á markaðnum sem inniheldur svona mikið magn af hreinu SIO2.
Kísildíoxíð (SIO2) situr í fjórða sæti yfir hörðustu steinefni sem finnast í heiminum, skapar það mjög tæra og fallega húð yfir lakkið, hrindir frá sér vatni og gefur góða endingu. Ekki er þörf á að bóna bílinn ef búið er að bera á hann Cquartz UK en við mælum með því bera á bílinn CARPRO Reload sealant vörn á 3 – 4 mánaða fresti til þess að viðhalda Keramíkhúðinni og fá betri endingu.
Cquartz UK er harðara en hefðbundin glæra á bíl og eykur því þol bílsins gegn rispum og hrindir hann betur frá sér óhreinindum td. tjöru og salti. Vegna eðlis keramík efnisins þá er nauðsynlegt að lakkið sé í sínu besta ástandi. Það þýðir að nema bíllinn sé nýr eða mjög nýlegur, þá þarf að öllum líkindum að massa hann áður.
Innifalið:
- Þykktarmæling á lakki
- Lakkið hreinsað og undirbúið fyrir mössun
- Bíllinn leiraður til að losa föst óhreinindi (Ef þarf)
- Lakkið massað með vélum
- Lakkið hreinsað með hreinsiefnum
- Cquartz UK 3.0 borið á
- Dlux Felgucoat borið á felgur
- Flyby Forte borið á framglugga
Ráðlagt er að hafa bílinn þurran í 24klst fyrir hámarks endingu og þess vegna geymum við bílinn inni hjá okkur yfir nóttina. Ekki skal þvo bílinn með sápu fyrstu 7 daga eftir að Cquartz er sett á bílinn.

ATH: Gildir aðeins fyrir bíla sem koma í keramikhúðun í Febrúar og Mars.
| Tilboðspakki: | |
|---|---|
| lítill fólksbíll (t.d Yaris) | 79.990 kr |
| Stór fólksbíll (t.d Toyota Avensis) | 89.990 kr |
| Lítill Jeppi (t.d Mazda CX-3) | 99.990 kr |
| Stór Jeppi (t.d Range Rover Sport) | 119.990 kr |
| Yfirstærð (t.d Ford F350) | TILBOÐ |
