Til hamingju!
Þú hefur tekið stórt skref til þess að viðhalda lakkinu á bílnum þínum betur og fengið þér Cquartz UK 3.0 coat eða keramikhúð sem er harðasta keramík húð sem fæst á markaðnum í dag. Að hugsa um lakk bifreiðar sinnar eins og fagmaður er mikill kostur og eykur virði hennar.
Við sérhæfum okkur í lakkviðhaldi og viljum við því gefa þér þann kost og hjálpa þér að ná fram góðum árangri í viðhaldi á þinni bifreið. Mikilvægt er að kústa eða svampa lakkið aldrei þar sem það getur skilið eftir sig djúpar þvottarispur og sært eða jafnvel eyðilagt lakkvörnina. Að nota rétt efni, búnað og aðferðir er mikilvægt til gera þvottinn þinn öruggan fyrir lakkið ásamt því að lakkvörnin á bílnum særist ekki. Þegar kemur að því að viðhalda lakkinu á bílnum hefur þú tvo kosti, þú getur skráð þig í VIP áskrift hjá okkur þar sem við sjáum alveg um þetta fyrir þig eða séð sjálfur um að þvo bílinn.
Fyrir þá sem vilja viðhalda lakki bílsins sjálfir höfum við sett saman þessar leiðbeiningar til þess að tryggja það að þú náir sem bestum árangri.
Rétt viðhald á lakki
Tjöruhreinsun:
Ef bíll er með mikið af tjöru, þá er best að úða tjöruhreinsi yfir allt lakkið áður en skref 1 hefst. Leyfa tjörnuhreinsinum að liggja í 2 – 5 mín, smúla svo þétt og fjarlægja tjöruna þannig af. Mikilvægt er að velja rétta tegund tjöruhreinsis:
Sterkir tjöruhreinsar á borð við þá sem innihalda efni eins og terpensínu skal forðast. Þeir fjarlægja bónhúð, geta sært yfirborð ceramic varnar og upplita plöst.
Betri valkostur á tjöruhreinsi er UNDRI tjöruhreinsir sem er mjög mildur og öruggur, CarPro TarX er líka öflugur og öruggur, upplitar eða særir ekki.
1.Skref – Forþvottur (e. Prewash):
1.1 – Úða sápu yfir bíl og felgur (óspart) með kvoðubrúsa (e. FoamCannon)
1.2 – Nota PH-neutral sápu ef bifreiðin er með ceramic vörn á (CARPRO Reset)
1.3 – Sterkari sápur af alkaline gerð (basískar) má nota almennt á lakk sem hefur enga vörn á sér, því annars fjarlægir það bónhúð eða særir ceramic vörn.
Flugur: ef flugur eru á framenda bíls, nota skal sérstakan flugnahreinsir á það svæði, helst PH hlutlausan ef hægt er.
2.Skref – Smúla niður sápuna með þrýsting
3.Skref – Felgur
3.1 Þrífa felgur með mjúkum felguhanska eða felgubursta með CARPRO IronX járnútfellingahreinsi
ATH: Aðeins þarf að sýruþvo ef felgunum hefur ekki verið sinnt í langan tíma, annars bara IronX hreinsir
3.2 Smúla felgur
4.Skref – Járnútfellingahreinsun lakk (ef þarf)
4.1 Úða IronX útfellingahreinsi yfir lakkið, láta standa eins lengi og hægt er. (Passa að IronX þorni ekki, smúla svo niður með þrýsting)
5.Skref – Sápuþvo með þvottahanska
5.1 Ein aðferð: Úðið kvoðu aftur yfir bifreiðina (létt), byrja svo að þvo með mjúkum þvottarhanska
5.2 Önnur aðferð: Vera með sápubrúsa í hönd og úða vel á flötinn, áður en þrifið er með þvottahanskanum.
Muna að láta þvottahanskann fljóta eftir lakkinu án þrýstings, skolið í fötu eftir hvern flöt. Skola úr þvottahanska í góða fötu með GritGuard sandskilju eftir hvern panel/flöt, ná þannig sandi og ryki úr hanskanum jafnóðum.
5.3 Svæði fyrir svæði: Strjúkið yfir húdd, skola í fötu, strjúka yfir frambretti, skola, framhurð, skola, afturhurð, skola o.s.f.v. Byrjið efst, endið neðst því mesta drullan liggur neðst. Þetta er gert til að koma í veg fyrir þvottarispur.
ATH: Hafið nóg af vatni og sápu á sama tíma svo hanskinn fljóti eftir lakki, annars verður yfirborðið stammt og hanskinn farinn að mynda fínar þvottarispur.
6.Skref – Smúla niður sápuna
Ef bifreið er þveginn innandyra er jafnvel hægt að þrífa hana alla með hanskanum, skola svo. ATH: Ef bifreið er þveginn úti í sól þarf að skola oftar svo sápan nái ekki að þorna.
7.Skref – Þurrka
Tilvalið með CARPRO Dhydrate one-pass þurrkhandklæðinu (með þeim allra öruggustu leiðum til að þurrka bifreiðina). Einnig hægt að blása með lofti ef aðgengi er af stórri loftpressu (snertilaust)
8.Skref – Lakkvörn
Til að viðhalda ceramic vörninni vel skal bera CARPRO Reload yfir lakkið, sem er viðhaldsefni húðarinnar (e. sacrifial layer). Með því er verið að setja auka varnarlag ofan á ceramic vörnina sem hlífir henni og gerir henni kleift að endast mun lengur, á meðan hún ver lakkið sjálft. Mælt er með að leggja Reload yfir bílinn 3- 5x á ári, fer eftir notkun.
Búnaður & efni
Grunnur að velgengni í umhirðu bílsins er að vera með réttan búnað og efni. Allar þessar vörur er hægt að fá hjá okkur og er hægt að panta í netverslun. Aðeins það besta fyrir okkar viðskiptavini!
Búnaður:
- Háþrýstidæla
- Kvoðubyssa (e. FoamCannon)
- Mjúkur þvottahanski (MF eða ull)
- Felguhanski eða felgubursti
- Góð 20L fata + sandskilja (e. GritGuard)
- Þurrkhandklæði: CARPRO Dhydrate
Efni:
- PH-neutral hlutlaus sápa: CARPRO Reset
- Járnútfellingahreinsir: CARPRO IronX eða sambærilegt
- Lakkvörn: CARPRO Reload eða CARPRO HydrO2 (“spray-bón”)
- Tjöruhreinsir: CARPRO TarX eða UNDRI
-

AutoFinesse 20L Fata m/ GritGuard
Þrífðu þinn bíl með þessum ótrúlega flottu fötum frá ...4.990 kr. Add to cart -

CarPro IronX Cherry 1L
CarPro IronX er öflugt hreinsiefni til notkunar á öll ...3.990 kr. Add to cart -

CarPro Reload 500ml – Bón
CarPro Reload er bón sem inniheldur hluta af varnareiginleikum ...4.290 kr. Read more -

CarPro Reset Bílasápa 1L
CarPro Reset bílasápan er hentug í allan bílaþvott. Sápan ...2.990 kr. Add to cart -

CarPro TarX Tjöruhreinsir
Öflugt hreinsiefni sem virkar vel á tjöru, pöddur og alla ...3.490 kr. Read more
